Brooks Ghost 14 er mest verðlaunaði skór síðustu 14 ára í stærsta hlaupatímariti heims og Runner’s World og hafa alls 8 sinnum verið kosnir skór ársins. Þeir eru mjúkir, veita frábæra höggdempun og eru með hlutlausan stuðning. Þó skórnir séu hannaðir sem hlaupaskór henta þeir frábærlega í göngur, vinnu og til daglegrar notkunar.
Það er ekki að ástæðulausu að Ghost er ár eftir ár mest seldi og mest verðalaunaði hlutlausi skórinn í hlaupabúðum, bæði í Evrópu og USA. Þetta er skór sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum í hvaða vegalengd sem er. Frábær í hlaupin, göngu á hörðu undirlagi og frábær sem vinnuskór ef þú ert að standa eða ganga á hörðu gólfi.
Hæðarmismunur hæls og tábergs á Ghost 14 er 12 mm og hann vegur 281g í karlastærð 42,5 og 255g í kvennastærð 40. Áætluð ending er 800-1000km. Fer eftir undirlagi, skekkju í fótum, álagið í niðurstigi, þyngd og fleiri líkamlegum- og umhverfisþáttum.
Tekur númeri stærra en þú ert vanur/vön af götuskón s.s Ecco. Brooks eru litlir í númerum